Á hverju byrja ég?
Bifhjólapróf má taka við 17 ára aldur.
- Fyrsta skrefið við upphaf bifhjólanáms er að hafa samband við ökukennara.
- Ökukennari aðstoðar nema í frammhaldi við að velja bifhjólaskóla þar sem bóklegur hluti námsins fer fram.
- Viðkomandi þarf svo að sækja um bifhjólaréttdi hjá sýslumanni.
- Því næst er bóklegt próf pantað hjá Frumherja í síma 570-9070 eftir að bifhjólaskóla er lokið.
- Viðkomandi getur hafið verklegt nám þó svo bóklegum hluta kennslunar sé ekki lokið.
- Ökukennari sér svo um að panta verklegt bifhjólapróf þegar hann telur nemann nægilega færan til að aka af öryggi í umferðinni.
Bifhjólanám
Til þess að fá réttindi á bifhjól þarf taka 24 tíma bóklegt nám og að minsta kosti 11 tíma verklegt nám.
Þeir sem hafa B-réttindi (almenn ökuréttindi) þurfa að taka 12 tíma bóklegt nám og 11 tíma verklegt nám.
Nám hefst á bóklegu námi sem endar með prófi og taka þvínæst verklegir tímar við.
M – Létt bífhjól (Skellinaðra)
Veitir rétt til að stjórna:
- léttu bifhjóli/skellinöðru með slagrými ekki yfir 50 sm3 og ekki hannað til hraðari aksturs en 45 km.
Aldurstakmark fyrir M réttindi er 15 ár.
A1 – Litið bífhjól
Veitir rétt til að stjórna:
litlu bifhjóli , en undir það flokkast:
- tvíhjóla bifhjól/mótorhjól þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer ekki yfir 0,1 kW/kg. Þá má vélarafl bifhjólsins ekki fara yfir 11 kW – 125 cc.
- þríhjóla bifhjól þar sem vélarafl fer ekki yfir 15 kW.
- AM réttindi.
Aldurstakmark er 17 ár
A2 – Litið bífhjól
Veitir rétt til að stjórna:
litlu bifhjóli , en undir það flokkast:
- tvíhjóla bifhjól/mótorhjól þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer ekki yfir 0,2 kW/kg. Þá má vélarafl bifhjólsins ekki fara yfir 35kW. Ekki má breyta vélarafli úr meiru en tvöföldu afli.
- AM og A1 réttindi.
Aldurstakmark er 19 ár
A – Stórt bífhjól
Veitir rétt til að stjórna:
stóru bifhjóli , en undir það flokkast:
- tvíhjóla bifhjól þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer yfir 0,2 kW/kg eða vélarafl bifhjólsins fer yfir 35kW.
- þríhjóla bifhjól þar sem vélarafl fer yfir 15kW.
- AM, A1 og A2 réttindi.
Aldurstakmark 24 eða 21 ár ef A2 í amk 2 ár.